Húnavökuritin telja 11 til 12 þúsund síður
Ársrit Húnavöku í ár er komið út, en Ungamennasamband Austur-Húnavatnssýslu hefur gefið ritið út allt frá árinu 1961. Það er því 53. árgangur ritsins sem nú lítur dagsins ljós. Að vanda er fjölbreytt efni í ritinu, s.s. fréttir úr héraði, viðtöl við þekkta einstaklinga innan héraðs, frásagnir, kveðskapur, minningargreinar um látna Húnvetninga og margt fleira.
Feykir hafði samband við Eystein Pétur Lárusson, framkvæmdastjóra USAH, og spurði hann aðeins út í úgáfuna.
„Mikilvægi ritsins er mikið að okkar mati. Það er þýðingarmikið framlag til sögu héraðsins, bæði dagsins í dag sem og fyrri tíma sögu. Þarna er fjallað um þjóðhætti og örnefni, þetta er vettvangur þar sem hægt er að koma kveðskap, smásögum og ýmis konar greinum á framfæri, þar eru viðtöl við samferðamenn og svo framvegis,“ segðir Eysteinn.
En hversu viðamikil skyldi útgáfan vera orðin frá upphafi?
„Á þessum 53 árum er ritið orðið samtals milli 11 og 12 þúsund blaðsíður að efni, eða að meðaltali um 230 síður hver bók. Höfundar sem skrifað hafa í ritið eru orðnir nær 500 talsins.“
Eysteinn segir ritnefnd vera starfandi fyrir ritið og í henni eru sex manns sem sjá um að safna efni og búa það til útgáfu. Sú vinna er öll innt af hendi í sjálfboðavinnu, en greitt er fyrir umbrot, prentun og markaðssetningu.
Ritið er fyrst og fremst selt í Austur-Húnavatnssýslu og þá er einnig hægt að gerast áskrifandi með því að senda póst á netfangið usah@simnet.is og fá ritið sent hvert á land sem er. Einnig er ritið selt á skrifstofu USAH, sem og í Samkaup á Blönduósi og Skagaströnd, að sögn Eysteins.