Húni.is er 10 ára í dag

Húnahornið – Fréttavefur Húnvetninga – fagnar 10 ára afmæli í dag en það var þennan dag fyrir 10 árum sem fyrsta fréttin birtist á Húna.is og síðan þá hafa verið birtar fréttir úr Húnaþingi og nágrenni nærri daglega.

Á Húna.is segir að vefurinn hafi áunnið sér fastan lesendahóp um land allt og er vefurinn lesinn jafnt af heimamönnum sem og brottfluttum Húnvetningum, víðs vegar um heiminn og margir nágrannar Húnvetninga skoða Húna.is reglulega. Þá hefur Feykir átt góð samskipti við afmælisbarnið og notið góðs af miðlinum sem hefur verið einkar lifandi og skemmtilegur.

Hugmyndin að Húna.is kviknaði á vormánuðum 2001 og þann 14. júní sama ár birtist fyrsta fréttin á frekar frumstæðum Húna.is. Vefurinn fékk strax góðar viðtökur og efldist ár frá ári. Í janúar 2005 urðu þáttaskil í vinnslu Húna.is þegar tekið var í notkun gagnagrunnstengt vefumsjónarkerfi og núverandi vefur kynntur til sögunnar. Í mars 2008 voru gerðar róttækar breytingar á útliti vefsins og síðan þá hafa reglulegar uppfærslur og viðbætur verið gerðar.

Feykir óskar Húna.is til hamingju með áfangann.

Fleiri fréttir