Húnvetningadeild Ferðaklúbbsins 4x4 20 ára

Húnvetningadeild Ferðaklúbbsins 4x4 mun halda upp á að 20 ár eru liðinn frá stofnun deildarinnar laugardaginn 1. desember. Stofnfundur var haldinn 30. október 1992 í skíðaskálanum á Skagaströnd og voru stofnfélagar 30 talsins.

Í auglýsingu í Sjónaukanum kemur fram að í tilefni af þessum tímamótum verður opið hús í salnum sem áður hýsti Ósbæ að Þverbraut 1 Blönduósi frá kl. 14 - 17. Verður gestum og gangandi boðið upp á kaffi og ilmandi vöfflur ásamt því að hægt verður að skoða eitthvað af bílaflota félagsmanna á planinu fyrir utan.

Fleiri fréttir