Húnvetningar á leið á Heimsmeistaramót í íshokkí
Þrjár ungar húnvetnskar konur eru á næstunni að fara til Suður Kóreu með landsliði Íslands í íshokkí og munu dvelja þar dagana 10. – 16. mars. Þar munu þær keppa fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramóti kvennaliða.
Samkvæmt Húna.is er þarna á ferðinni þær Arndís Sigurðardóttir, Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Jónína Margrét Guðbjartsdóttir.
Auk Íslands verða keppendur á mótinu Belgía, S-Kórea, Pólland, S-Afríka og Spánn.