Húnvetningar keppa til úrslita í spurningakeppni átthagafélaganna í kvöld
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
04.04.2014
kl. 13.20
Í kvöld fara fram undanúrslit og úrslit í spurningakeppni átthagafélaganna í Breiðfirðingabúð að Faxafeni 14 í Reykjavík. Þar mun lið Húnvetninga etja kappi ásamt liðum Breiðfirðinga, Siglfirðinga og Skaftfellinga. Á eftir verður opið hús, barinn opinn og tónlist á fóninum. Gott tækifæri til að spjalla og skemmta sér.
Keppnislið Húnvetninga skipa:
Jóhann Almar Einarsson frá Tannstaðabakka.
Hugrún R. Hólmgeirsdóttir ættuð frá Bjarghúsum og Þorgrímsstöðum.
Einar Logi Vignisson frá Blönduósi.