Húnvetningar syngja syðra
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
01.11.2013
kl. 09.05
Húnakórinn syngur við guðsþjónustu í Kópavogskirkju næstkomandi sunnudag, 3. nóvember, klukkan 14:00. Prestur er séra Sigurður Arnarson. Kórinn syngur undir stjórn Þórhalls Barðasonar og undirleikari er Sigurður H. Oddsson.
Kaffihlaðborð í umsjón kaffinefndar hefst klukkan 15:00 að lokinni guðsþjónustu í Húnabúð, Skeifunni 11, 3.hæð (lyfta er í húsinu). Þar svigna borð undan kræsingum. Meðlæti er að vanda vel þegið á kaffiborðið. Verð kr. 1.300 á mann. Athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukorti.