Húnvetnska liðakeppnin hefst á laugardaginn

Nú styttist í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður laugardaginn næstkomandi, 8. febrúar. Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17 ára og yngri (fædd 1997 og seinna). 

Tveir verða inn á vellinum í einu og er prógrammið í forkeppni: hægt tölt - fegurðartölt - fet - brokk - stökk og er stjórnað af þul. En úrslit verða riðin eins og venjulega; hægt tölt - brokk - fet - stökk - fegurðartölt.

Skráningum lýkur á miðnætti miðvikudagsins 5. febrúar og er skráning er á netafangið thytur1@gmail.com. Það sem koma þarf fram er nafn og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða. Skráningargjaldið er 2.000 fyrir fullorðna og 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Hægt verður að skrá ný lið til leiks fram að miðnætti miðvikudagsins 5. febrúar.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd Hestamannafélagsins Þyts.

Fleiri fréttir