Húnvetnskar konur í árlegri kvennareið
Húnahornið segir frá því að sl. Sunndag hafi 34 glæsilegar konur á öllum aldri tekið þátt í árlegri kvennareið í Austur-Húnavatnssýslu. Lagt var af stað frá Húnsstöðum og riðið meðfram Húnavatni. Staldrað var við í fallegri laut þar sem hressing beið kvennanna, framreidd af eiginmanni einnar þeirra, honum Pétri í Brekkukoti. Þaðan var haldið yfir Húnavatn og í Þingeyrar þar sem kvennanna beið rjúkandi lambasteik.