Hús frítímans opnar formlega á morgun
Þá er komið að því að vígja Hús frítímans á Sauðárkróki. Það verður gert á morgun við hátíðlega athöfn.
Athöfnin hefst kl. 16.30 með skrúðgöngu frá Fjölbrautaskólanum.
Gengið verður fram hjá Árskóla og íþróttavellinum og komið að Húsi frítímans kl. 17.00. þar verður klippt á borða og flutt stutt ávörp.
Kl.17:20 hefjast tónleikar þar sem fram koma Kór FNV, Kór eldri borgara og tónlistarfólk úr Félagsmiðstöðinni Friði.
Húsið verður opið til kl. 22.00
Allir hjartanlega velkomnir.