"Hvað er Grasrótarþjóðkirkja?" - Kynningarfundur sr.Þórhalls Heimissonar, biskupsframbjóðanda.

Fimmtudagskvöldið 16. febrúar næstkomandi heldur sr.Þórhallur Heimisson opinn kynningarfund í safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju, en hann hefur boðið sig fram til biskups Íslands.

Á fundinn er sérstaklega boðið prestum, djáknum, kirkjuþingsmönnum og sóknarnefndarformönnum í Skagafirði og Húnavatnssýslum, en allir sem áhuga hafa aðrir eru hjartanlega velkomnir.

Fundurinn hefst kl.20.30. Nánari upplýsingar fást í s.8917562.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir