Hvað skal gera þegar sólin truflar fólk við aksturinn
Þrátt fyrir að sólin hækki dag frá degi segir á heimasíðu Sjóvá að á þessum árstíma sé hún samt það lágt á lofti að það hafi áhrif á akstursskilyrði á vegum úti því undir ákveðnum kringumstæðum getur sólin blindað ökumenn. Það getur einnig skapað ýmsan vanda ef bílrúður eru ekki hreinar.
„Til þess að minnka líkurnar á því að blindast vegna sólar þurfa bílrúður að vera hreinar bæði að inna og utan, fylla þarf reglulega á rúðuvökva og góð þurrkublöð eru nauðsynleg. Hreinsa þarf hliðarspegla og hafa ávallt nægt bil á milli bíla,“ segir á Sjóvá.is.
Hér fylgja nokkur ráð frá Sjóvá fyrir fólk til að draga úr áhrifum blindandi sólar:
- Hreinsaðu bílrúðurnar, bæði innan frá og utan.
- Hreinsaðu hliðarspegla bílsins.
- Fylltu reglulega á rúðuvökva.
- Góð þurrkublöð á bílnum eru nauðsynleg.
- Góð sólgleraugu eru kostur.
- Notaðu sólskyggnið í bílnum.
- Hafðu ætíð nægt bil á milli bíla