Hvað viltu sjá á sjóndeildarhringnum?
Nes listamiðstöð bauð í vikunni krökkum á Skagaströnd upp á námskeið í skapandi list. Leiðbeinandi var Kendra Walker, kanadísk listakona, búsett í París. Námskeiðið var utan dyra og valdi hún því stað á planinu við gömlu rækjuvinnsluna.
Námskeiðið fólst í því að teikna það sem krakkarnir vildu sjá úti við sjóndeildarhringinn en þeir höfðu fengið krítar í nokkrum litum og hófust svo handa við að teikna.
Eins og búast mátti við höfðu krakkarnir ansi frjótt ímyndunarafl eins og sjá má á verkum þeirra og er hægt að sjá myndasyrpu inni á vefsíðu Neslists en þar segir að meira að segja þeir sem ekki vildu teikna tóku þátt með því að teikna með hjólunum … Kendra lét þá lita dekkin og krakkarnir hjóluðu um planið og „skrensuðu“ svo úr urðu einhvers konar afstrakt myndir.
Yfir tuttugu krakkar tóku þátt í námskeiðinu.
/Neslist.is