Hvassast og él úti við sjóinn
Hálka er á Þverárfjalli en snjóþekja og snjókoma frá Sauðárkrók að Hofsós. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi, en annars eru aðalleiðir á Norðurlandi vestra greiðfærar. Þungfært og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 10-18 m/s og skýjað, hvassast og él úti við sjóinn. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðaustan 10-15 m/s og él eða dálítil snjókoma, en 5-10 og léttskýjað SA-til. Frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars 1 til 6 stig.
Á sunnudag:
Norðaustan 10-18 m/s, hvassast NV-til. Snjókoma eða él víða á landinu, en bjartviðri SV-lands. Frost víða 0 til 5 stig.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Allhvöss norðaustanátt og dálítil él N- og A-til, en annars úrkomulítið. Kólnandi veður.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir norðanhvassviðri með snjókomu N- og A-lands, en bjartviðri SV-til.