Hvasst og snjókoma í kvöld
Veðurstofa Íslands spáir suðvestan 13-18 m/s og skúrir eða él í dag, en snýst í norðvestan 8-13 og fer að snjóa í kvöld. Norðvestan 10-15 og snjókoma á morgun. Hiti 0 til 5 stig, en frost 1 til 6 stig í nótt og á morgun.
Samkvæmt korti Vegagerðarinnar er greiðfært um mest allt Norðurland vestra, utan við Reykjaströnd, Hegranes, Sæmundarhlíð, fremst í Lýtingsstaðahreppi og Siglufjarðarveg utan Hofsóss en á þeim slóðum eru hálkublettir.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðan 13-18 m/s, en mun hægari SA-lands fram eftir degi. Snjókoma eða skafrenningur um norðanvert landið en úrkomulítið fyrir sunnan. Frost 0 til 6 stig.
Á sunnudag:
Norðan- og norðvestan 10-18 m/s og snjókoma á N- og A-landi, en annars hægari og bjartviðri. Lægir heldur og rofar til NV-lands um kvöldið. Kólnandi veður.
Á mánudag:
Norðaustan 5-13, hvassast á Vestfjörðum. Él norðaustantil en annars bjartviðri. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á þriðjudag:
Norðaustan 8-13 með snjókomu eða éljagangi, en úrkomulítið SV-til. Frostlaust með sjónum en annars vægt frost.
Á miðvikudag:
Norðaustan 10-15. Snjókoma eða slydda um austan- og norðanvert landið en úrkomulaust suðvestantil. Hiti kringum frostmark.