Hvassviðri á Norðurlandi vestra í dag
Búast má við norðaustan hvassviðri eða stormi og hríðarbyl á öllu norðanverðu landinu í dag með takmörkuðu skyggni, hvassast er á NV-verðu landinu. Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Norðurlandi vestra.
Veðurstofa Íslands spáir Norðaustanátt, 15-23 m/s og snjókoma með köflum, hvassast og úrkomumest á annesjum og á Ströndum. Ívið hægari og úrkomuminna seint í kvöld, norðaustan 10-18 í fyrramálið og él, en hægari annað kvöld. Hiti kringum frostmark, en 1 til 7 stiga frost í nótt og á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðaustan 10-18 m/s, hvassast austast á landinu. Úrkomulítið á S- og V-landi, annars snjókoma, einkum á A-landi. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust syðst.
Á sunnudag:
Norðan 8-13 m/s og él, en bjartviðri sunnan heiða, þó líkur á éljum allra syðst. Frost 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á mánudag:
Stíf austanátt með snjókomu eða slyddu um landið S-vert og hita nálægt frostmarki. Hægari vindur og þurrt framan af degi á N- og A-landi og frost að 12 stigum.
Á þriðjudag og miðvikudag (Þorláksmessa):
Útlit fyrir norðaustlæga eða breytilega átt með líkum á snjókomu eða éljum í flestum landshlutum. Hiti yfirleitt undir frostmarki, mildast við ströndina.