Hvassviðri eða stormur og slæmt ferðaveður
Veðurstofan varar við hvassviðri eða stormi á landinu í dag og á vedur.is segir að búast megi við sæmu ferðaveðri á landinu í dag. Veðurspáin fyrir Strandir og Norðurland vestra næsta sólarhringinn hljóðar upp á vaxandi norðanátt með talsverðri snjókomu, 15-23 m/s um hádegi. Heldur hægari vestlæg átt í kvöld.
Suðvestan 8-15 og él í nótt en hæg austlæg átt og úrkomulítið á morgun. Hiti nálægt frostmarki.
Á vegum á Norðurlandi vestra er víðast hálka eða hálkublettir og hiti rétt undir frostmarki. Vindur er víðast í kringum 6-8 m/sek en fer í 13 m/sek á Siglufjarðarvegi og 14 m/sek við Stafá í Skagafirði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðaustan 10-18 m/s NV-til og snjókoma. Mun hægari vindur í öðrum landshlutum og víða él, en skúrir með A-ströndinni. Allvíða frostlaust með ströndinni, en vægt frost til landsins.
Á sunnudag og mánudag (Þorláksmessa):
Norðaustan 8-15 m/s á Vestfjörðum og snjókoma með köflum. Annars suðvestan og vestan 3-10 og él, en úrkomulaust að kalla á NA- og A-landi. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum.
Á þriðjudag (aðfangadagur jóla):
Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu, en þurrt S-til á landinu. Frost 1 til 7 stig.
Á miðvikudag (jóladagur):
Horfur á minnkandi norðanátt. Dálítil él N-til, en víða bjart veður annars staðar. Talsvert frost.