Hvatt til nýsköpunar í sveitum

Í Húsdýragarðinum á Brúnastöðum í Fljótum. Mynd:FE
Í Húsdýragarðinum á Brúnastöðum í Fljótum. Mynd:FE

Í ágústmánuði munu Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins standa fyrir fundaherferð sem hefur það að markmiði að hvetja til nýsköpunar í sveitum. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, verður aðalfyrirlesari fundanna en á þeim flytur hann erindi sem ber yfirskriftina Leiðin til sigurs. Þar fjallar Guðmundur um árangursríka markmiðasetningu og hvað þarf til að ná framúrskarandi árangri. Einnig fjallar hann um uppbyggingu liðsheildar, samskipti og innleiðingu breytinga.

Að auki verða fengnir til leiks reynsluboltar í sölu vöru og þjónustu beint frá býli til að miðla af reynslu sinni varðandi þróun og markaðssetningu. Þá verður erindi frá ráðunautum RML varðandi ýmsa sjóði sem hægt er að sækja styrki í og kynnt verður hvernig umsóknarferlið fer fram.

Tímasetning fundanna er sem hér segir:

22. ágúst kl. 20:00 - Húnavatnssýslur - Félagsheimilið Víðihlíð.
23. ágúst kl. 13:00 - Strandasýsla - Sauðfjársetrið Ströndum.
24. ágúst kl. 13:00 - Dalasýsla - Félagsheimilið Dalabúð, Búðardal.
28. ágúst kl. 13:00 - Skagafjarðarsýsla - Félagsheimilið Höfðaborg, Hofsósi.

 

Fundirnir verða öllum opnir og eru sem flestir hvattir til að mæta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir