Hver er fugl ársins að þínu mati?

Kosningin á Fugli ársins er hafin og stendur til 12. september nk. Það er Fuglavernd sem stendur að keppninni og að þessu sinni eru það auðnutittlingur, himbrimi, hrafn, hrossagaukur, jaðrakan, kría og maríuerla sem keppa um að verma hæstu fuglaþúfuna 2022.

„Kynntu þér fróðleiksmola um tegundirnar á  www.fuglarsins.is og kjóstu þann sem verðskuldar hæstan sess þetta árið á www.fuglarsins/kosning,“ segir í skeyti frá Fuglavernd. Tilkynnt verður um Fugl ársins 2022 á Degi ísenskrar náttúru, 16. september.

Hvers vegna er verið að kjósa Fugl ársins?

„Með kosningu á Fugli ársins vill Fuglavernd vekja athygli á málefnum fugla. Margar fuglategundir sækja hingað til lands vegna góðra og oft framúrskarandi aðstæðna til að ala unga sína en sumar þeirra eru í hættu vegna umsvifa mannsins, loftslagsbreytinga eða eyðingu búsvæða. Einstaka fuglar njóta ákveðinna óvinsælda vegna lífshátta sinna og veitir ekki af tækifæri til að reyna að bæta ímynd sína. Mest er þetta þó til gamans gert svona í lok sumars þegar horft er til baka yfir varptímabilið og á eftir farfuglunum okkar sem vonandi snúa á vetrarstöðvarnar með ungana sína og heim aftur næsta vor,“ segir í tilkynningu Fuglaverndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir