Hver hlýtur Eyrarrósina 2023? :: Auglýst eftir tilnefningum um framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni

Í átjánda sinn auglýsa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair nú eftir umsóknum um Eyrarrósina. Viðurkenningin er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem hefur fest sig í sessi. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 13. apríl. Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Þjóðlagahátíðina á Siglufirði, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Skaftfell, Frystiklefann á Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska vinda í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði, Skjaldborg á Patreksfirði og nú síðast brúðuleikhúsið Handbendi á Hvammstanga.

Eyrarrósarhafinn hlýtur 2,5 milljón króna peningaverðlaun, gert verður myndband um verkefnið og því gefinn kostur á því að standa að viðburði á aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2024.
Að auki verða veitt þrenn hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar til verkefna sem hafa verið starfrækt í minna en þrjú ár. Hver hvatningarverðlaun eru 750 þúsund krónur.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og umsóknareyðublað má finna á heimasíðu Listahátíðar: www.listahatid.is/eyrarrosin
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir