Hvert er þú að fara góði?

Vegagerðin áætlar að standa fyrir umferðarkönnun á vegamótum Hringvegar og Reykjabrautar í Austur-Húnavatnssýslu, fimmtudaginn 15. september og laugardaginn 17. september nk. og mun standa yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana. Vegfarendur eru beðnir um að taka starfsmönnum Vegagerðarinnar vel sem munu stöðva allar bifreiðar, sem koma að könnunarstaðnum, og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.

 

 

Úr könnuninni fást m.a. upplýsingar um aksturserindi, samsetningu umferðar og tíðni ferða milli einstakra staða og svæða, sem nýtast munu við almenna áætlanagerð.

Fleiri fréttir