Hvessir með kvöldinu

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 10-15 m/s og él með morgninum. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands bætir í vind í kvöld en þá verður norðan 15-23 m/s og snjókoma, en lægir og él í nótt. Norðaustan 3-10 og stöku él á morgun. Frost 2 til 10 stig.

Lítil hálka er á vestanverðu Norðurlandi en éljagangur er þó nokkuð víða. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja og skafrenningur milli Sauðárkróks og Fljóta en það er þungfært á Siglufjarðarvegi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Hvöss norðaustanátt og snjókoma í fyrstu á Vestfjörðum. Annars talsvert hægari vindur og stöku él, en bjartviðri SV-lands. Áfram kalt í veðri. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.

Á fimmtudag:
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast vi SA-ströndina. Allvíða dálítil él, en bjart að mestu S- og V-lands. Yfirleitt vægt frost en frostlaust með ströndinni.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Austlæg átt, lengst af 3-8 m/s, en hvassari við SA-ströndina og á annesjum N-til. Él SA- og A-lands, annars úrkomulítið og bjart á köflum. Hiti um frostmark NA-lands annars 0 til 5 stig yfir daginn.

Á mánudag:
Útlit fyrir hæga breytilega átt og víða bjartviðri, en austanátt og él SA-til. Hiti breytist lítið.

Fleiri fréttir