Hvessir síðdegis á Norðurlandi vestra
Veðurstofan spáir austan 3-8 m/s og skýjuðu en heldur hvassari og stöku élum á annesjum. Hvessir síðdegis og í kvöld, austan 10-18 seint í nótt og snjókoma með köflum. Suðaustan 8-13 annað kvöld og stöku él. Frost yfirleitt 2 til 7 stig í dag, en vægara á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðaustan 8-13 m/s og snjókoma á Vestfjörðum, vestan, og síðan norðan 5-13 og él V-til annars hæg suðlæg átt og bjartviðri en él með norður ströndinni um kvöldið. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-til.
Á fimmtudag:
Norðvestan 10-18 m/s með snjókomu eða éljum en lægir og léttir til seinnipartinn, fyrst V-til. Talsvert frost um land allt.
Á föstudag:
Suðaustanátt með slyddu og síðar rigningu, en úrkomulítið NA-til. Hlýnar um allt land.
Á laugardag:
Suðlæg átt og úrkoma, einkum S-til. Hiti 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
SV átt og éljagangur, og kólnar.