Hvetja hagræðingarnefnd til róttækni

Þingflokkur Bjartrar framtíðar birtir í dag opið bréf til hagræðingarnefndar ríkisstjórnarinnar. Bréfið birtist í Fréttablaðinu ásamt því að fylgja þessum pósti. Þingflokkur BF óskar meðlimum hagræðingarnefndar ríkisstjórnarinnar góðs gengis en vill um leið undirstrika þá miklu ábyrgð sem á meðlimum hennar hvílir. Eftirfarandi punktar eru úr opnu bréfi þingflokks BF til hagræðingarnefndar ríkisstjórnarinnar:

- Í bréfinu hvetur þingflokkur BF nefndina til þess að horfa til lengri tíma, bæði í tekjum og útgjöldum ríkisins, þannig að stofnanir samfélagsins geti gert langtímaáætlanir, en séu ekki háðar óvissu fjárlaga hvers árs.

- Nefndin er hvött til róttækni. Þingflokkur BF hafnar flötum niðurskurði þar sem stofnunum er gert að hagræða einhvern veginn, án þess að kafað sé dýpra í starfsemi þeirra, eðli og tilgang. Í bréfinu kemur fram að það þurfi að skoða mjög vel tillögur ýmissa aðila, innlendra sem erlendra, um það hvernig bæta megi nýtingu fjár í íslensku samfélagi.

- Miklar skattalækkanir eða skuldaniðurfellingar, með fé sem að öðrum kosti getur gagnast ríkissjóði, eru í bréfinu sagðar vafasamar. Þingflokkur BF hvetur hagræðingarnefndina til að skoða vel fórnarkostnaðinn af öllum aðgerðum: Ef peningur er notaður í eitthvað eitt, er ekki hægt að nota hann í annað.

- Þingflokkur BF bendir á að sameining stofnana ríkisins í færri en stærri rekstrareiningar, sem bjóða upp á samræmda þjónustu um allt land, séu forsenda fyrir uppbyggingu verkferla og breyttu skipulagi með áherslu á ábyrgð og skýra verkaskiptingu. Þá er bent á að slíkt geti falið í sér kostnað í upphafi en hagræðingu til lengri tíma litið.

Fleiri fréttir