Hvítir fjallatoppar á Norðurlandinu
Nú hefur haustið minnt rækilega á sig á Norðurlandi vestra með næturfrostum og hvítum fjallatoppum. Naprir vindar hafa kælt sólbarin andlit fólks síðustu daga og munu gera það áfram ef spá Veðurstofunnar gengur eftir sem gerir ráð fyrir norðvestan 3-8 og smáskúrum og hita frá 3 til 10 stig. Hæg suðlæg átt og léttskýjað verður á morgun og heldur hlýnandi þó hitinn verði aldrei mikill.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðvestan 10-15 m/s við NA-ströndina í fyrstu, annars fremur hæg suðlæg átt. Víða léttskýjað á N- og A-landi, annars skýjað og stöku skúrir V-lands. Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna á S- og V-landi um kvöldið. Hlýnandi, hiti yfirleitt 8 til 13 stig síðdegis.
Á föstudag:
Austan- og suðaustan 8-15 m/s og rigning, einkum S- og V-lands. Snýst í suðvestan 8-13 um kvöldið. Hiti 8 til 14 stig.
Á laugardag:
Vestlæg eða breytileg átt. Bjartviðri A-lands, annars skýjað og rigning með köflum. Hiti 8 til 16 stig, svalast við NV-ströndina en hlýjast á A-landi.
Á sunnudag:
Hæglætisveður og þurrt, en líkur á skúrum S- og V-lands. Milt veður.
Á mánudag og þriðjudag:
Breytileg átt og rigning með köflum.