Hvöt og Frumherji gera samstarfssamning
Knattspyrnudeild Hvatar og Frumherji hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára um að Frumherji gerist styrktar- og stuðningsaðili Knattspyrnudeildarinnar til uppbyggingar á barna- og unglingastarfi félagsins.
Á heimasíðu Hvatar kemur fram að það voru þeir Orri Hlöðversson, framkvæmdastjóri Frumherja, og Eysteinn Pétur Lárusson, frkv.stjóri Knattspyrnudeildar Hvatar, sem undirrituðu samninginn.
Feykir.is greindi frá því í síðustu viku að knattspyrnudeild Hvatar gerði samstarfssamning við Tryggingamiðstöðina sem gerðist einnig styrktar- og stuðningsaðili Knattspyrnudeildarinnar til uppbyggingar og barna- og unglingastarfi félagsins.