Hvöt og TM gera samstarfssamning
Knattspyrnudeild Hvatar á Blönduósi og Tryggingamiðstöðin hafa gert með sér samstarfssamning um að TM gerist styrktar- og stuðningsaðili Knattspyrnudeildarinnar til uppbyggingar og barna- og unglingastarfi félagsins.
Á heimasíðu Hvatar kemur fram að samningurinn sé til reynslu í 1 ár en samningsaðilar munu setjast niður saman að þeim tíma loknum með áframhaldandi samstarf í huga.
Það voru Jón Sigurðsson, umboðsmaður TM á Blönduósi og Eysteinn Pétur Lárusson, frkv.stjóri, knattspyrnudeildar Hvatar sem undirrituðu samninginn.