Hvöt stofnar sunddeild í dag

Húni segir frá því að í dag klukkan 17:00 mun íþróttafélagið Hvöt á Blönduósi stofna sunddeild við félagið en sundæfingar hafa staðið yfir hjá félaginu frá því að nýja sundlaugin opnaði fyrir ári síðan án þess þó að formleg sunddeild hafi verið stofnuð.

Aðdragandi stofnfundarins í dag er sá að mánudaginn 18. apríl s.l. kom Hörður Oddfríðarson formaður Sundsambands Íslands ásamt Emil Harðarsyni starfsmanni sambandsins á Blönduós, skoðuðu þeir sundlaugina og íþróttamiðstöðina og spjölluðu við þjálfara og foreldra sundiðkenda. Í kjölfar þess fundar var ákveðið að drífa í að stofna sunddeild Hvatar formlega – enda ekki eftir neinu að bíða þar sem sundgarpar félagsins eru á leið á sitt fyrsta sundmót um næstu helgi.

Á fundinum mun sunddeild Hvatar verða stofnuð formlega, ný stjórn kynnt sem og drög að lögum deildarinnar.

Allir foreldrar sundiðkenda sem og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta

Fleiri fréttir