Í dag er Dagur íslenskrar náttúru

Íslensk náttúra á góðum degi. Mynd: PF.
Íslensk náttúra á góðum degi. Mynd: PF.

Dagur íslenskrar náttúru er í dag en hann er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert, í fyrsta sinn 2011. Einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök eru ávallt hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Í tengslum við Dag íslenskrar náttúru afhendir umhverfis- og auðlindaráðherra tvær viðurkenningar; Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti og Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Viðurkenningarnar verða afhentar á stuttri athöfn í Grasagarðinum við Café Flóru kl. 15:30 í dag.

Tilnefnd til fjölmiðlaverðlaunanna eru:

•           Arnhildur Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, fyrir þáttaröðina Loftslagsþerapían,
•           Axel Bjarkar Sigurjónsson, Hálfdán Helgi Matthíasson og Sölvi Bjartur Ingólfsson fyrir heimildamyndina Mengun með miðlum
•           Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttamaður á fréttastofu RÚV, fyrir umfjöllun um náttúru Íslands
•           Sunna Ósk Logadóttir, blaðamaður á Kjarnanum, fyrir fréttaskýringar um virkjanamál

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir