Í syngjandi jólasveiflu í Miðgarði

Hulda Jónasar, Geiri og Eiki Hilmis. MYND AÐSEND
Hulda Jónasar, Geiri og Eiki Hilmis. MYND AÐSEND

Gná tónleikar og Hulda Jónasar kynna til sögunnar tónleikana Í syngjandi jólasveiflu þar sem flutt verða jólalög Geirmundar Valtýssonar. Tónleikarnir voru fyrst haldnir í Hörpu fyrir síðustu jól en nú verða jólalögin hans Geira flutt í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð 27. nóvember og reyndar einnig í Salnum í Kópavogi 5. desember.

Í kynningu á tónleikunum segir: „Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson er öllum að góðu kunnur eftir að hafa skemmt Íslendingum í áratugi. Hann hefur staðið á sviðinu allt frá árinu 1958 og verið einn afkastamesti tónlistarmaður landsins. Fjölmargir stórsmellir eru runnir frá Geirmundi auk fjölda breiðskífa en þær eru á annan tug. Á þessum tónleikum ætlum við að flytja jólalög eftir Geirmund og hver veit nema nokkrar þekktar perlur hans fái að fljóta með.“ Kynnir og sögumaður á tónleikunum er Valgerður Erlings og Sigrúnar og Feykir heyrði hljóðið í henni.

Hvað geturðu sagt Feyki um Í syngjandi jólasveiflu í Mið-garði? „Á þessum tónleikum munum við heiðra Geirmund okkar Valtýsson sem við eigum svo mikið að þakka og hlýða á þau jólalög sem komið hafa frá honum í gegnum tíðina. Einnig fá einhverjir slagarar að fylgja með. Geiri á ótrúlega stóran þátt í skemmtanalífi okkar Skagfirð-inga, og í raun Íslendinga, en ef mér reiknast rétt til eru 68 ár frá því hann steig fyrst á svið í Skagafirði með harmonikku og lék fyrir dansi, þá 14 ára gamall, sem var upphafið af farsælum ferli Geirmundar,“ segir Val-gerður.

Hin gömlu kynni gleymast ei

„Svo má nú ekki gleyma að hann, ásamt hljómsveit, tók á móti okkur ansi mörgum er við stigum í fyrsta sinn „löglega“ inn á dansgólfið í Bifröst með brakandi fersk nafnskírteini frá sýslumanni og fögnuðum nýju ári um leið og við þökkuðum fyrir þau gömlu,“ heldur Valgerður áfram. „Það er okkur öllum hollt að líta yfir farinn veg og þakka um leið fyrir það liðna og er það ekki einna helst í tengslum við jólahátíðina sem við gefum okkur tíma til að staldra við, líta yfir gengin spor og rifja upp hin gömlu kynni sem gleymast ei. En það ætlum við okkur einmitt að gera saman, hvort sem við stöndum á sviði eða sitjum úti í sal þann 27. nóvember í Miðgarði.“

Hvert er þitt hlutverk? „Sjálf er ég kynnir á tónleikunum. Ég kem inn á milli laga og rifja upp ýmislegt sem tengdist gömlu, góðu jólunum og að sjálfsögðu fylgja einhverjar sögur með af Geirmundi. Einnig á ég jólatexta sem ég samdi við eitt af gullmolum Geirmundar og fjallar um hvað ég er þakklát fyrir að hafa alist upp á Sauðárkróki með öllu því fólki sem þar var og er enn. Þetta samfélag á svo stóran þátt í þeirri manneskju sem ég hef að geyma og er já bara nokkuð ánægð með, þó ég segi sjálf frá.“

Valinn maður í hverju rúmi

Hljómsveitarstjóri er Magnús Þór Sveinsson, útsetningar eru í höndum Bjarma Hreinssonar. Sögumaður á tónleikunum verður Valgerður Erlingsdóttir en tónleikarnir eru byggðir á hugmynd Huldu Jónasdóttur en þær stöllur eru báðar Króksarar þó báðar geri út frá höfuð-borgarsvæðinu.

Það eru Geirmundur og Hulda sem sjá um lagavalið á tónleikunum en söngvarar kvöldsins í Miðgarði verða þau Ari Jónsson, Berglind Björk Jónasdóttir, Daníel E. Arnarsson og Heiða Ólafsdóttir. Bak-raddirnar hljóma úr hálsum Rakelar Pálsdóttur og Ölmu Rutar.

Hljómsveit kvöldsins verður skipuð Eiríki okkar Hilmissyni sem spilar á kassagítar, Gunnar Hinrik plokkar bassa, Ragnar Már Jónsson sér um blásturs-hljóðfæri, Sigurður Ingi trommar og Yngvi Rafn Garðarsson á gítar.

Þeir sem vilja panta miða fyrir hópa geta haft samband við Huldu í síma 866 0114. Miðasalan er komin í gang og má nálgast á tix.is /óab

Fleiri fréttir