Íbúafundum sem vera áttu í dag hefur verið frestað

Fram kemur á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar að íbúafundum sem halda átti í dag, á Ketilási, á Hólum og í Varmahlíð er frestað og verða auglýstir aftur síðar. Íbúafundur fór fram á Sauðárkróki í gærkvöldi og auglýstur er fundur á Hofsósi annað kvöld.

Á fundunum fer Haraldur Líndal yfir rekstrarúttekt sem hann vann fyrir sveitarfélagið.

Feykir sagði frá því í frétt í morgun, sem nú hefur verið fjarlægð, að ekkert fengi stöðvað íbúafundina en það reyndust ekki vera nákvæmar upplýsingar.

Fleiri fréttir