Íbúafundur vegna sameiningarviðræðna í Skagafirði í dag

Samstarfsnefnd um sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar, boðar til tveggja íbúafunda í dag. Haldnir verða tveir samskonar fundir og eru þeir opnir öllum. Sá fyrri verður haldinn í Félagsheimilinu Ljósheimum við Sauðárkrók kl. 17 til 18.30 og sá seinni í Héðinsminni Blönduhlíð kl. 20 til 21.30.

Á fundunum verður kynning á stöðu verkefnisins og umfjöllun um stöðu málaflokka í starfsemi sveitarfélaganna og mögulegar breytingar ef til sameiningar kemur. Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar kemur fram að samstarfsnefndin hveti íbúa til þess að mæta, kynna sér málin og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Fundunum verður streymt á Facebooksíðum sveitarfélaganna en á fundunum verður notað rafrænt samráðskerfi svo allir sitji við sama borð, þ.e. þeir sem mæta á fundarstað og þeir sem fylgjast með í streymi. Auk þess verður boðið upp á spurningar og ábendingar úr sal.

Samstarfsnefnd hefur birt fyrstu minnisblöð um þá málaflokka sem hafa verið til umræðu og eru íbúar hvattir til að kynna sér þau fyrir samráðsfundina. Lagt hefur verið mat á núverandi stöðu og hvaða áhrif möguleg sameining gæti haft á viðkomandi málaflokk en minnisblöð nefndarinnar eru aðgengileg HÉR.

Til að taka þátt á menti.com þarf að hafa síma, snjalltæki eða tölvu og fara inn á síðuna menti.com. Þar þarf að slá inn töluröð sem gefinn verður upp á fundinum og þá opnast samráðskerfið.

Kynningarnar frá fundunum verða gerðar aðgengilegar á skagfirdingar.is að fundum loknum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir