Íbúagátt Blönduósbæjar
Komið hefur verið upp upplýsingagátt, Íbúagátt, fyrir íbúa Blönduósbæjar á Netinu þar sem öllum upplýsingum um viðskipti milli íbúa og fyrirtækja við Blönduósbæ er safnað saman. Með tilkomu Íbúagáttarinnar mun útsendingu reikninga í pósti verða hætt og öll viðskipti framvegis rafræn.
Með þessum hætti er enn frekar dregið úr útsendingu reikninga og munu þeir birtast sem greiðsluseðill í heimabanka en afrit af reikningi er á íbúagátt. Aðgangur er í gegnum heimasíðu Blönduósbæjar og er hægt að nota veflykil ríkisskattsstjóra eða rafræn skilríki til að komst inn á heimasvæði hvers viðskiptavinar.
Frá næstu mánaðamótum verður hætt að senda út reikninga til allra sem fæddir eru eftir árið 1945 nema óskað sé sérstaklega eftir að fá áfram senda reikninga og greiðsluseðla til sín.
Sjá Íbúagátt HÉR