Íbúar Húnavatnshrepps boðaðir til almenns sveitarfundar

Íbúar Húnavatnshrepps eru boðaðir til almenns sveitarfundar á Húnavöllum miðvikudaginn 25. apríl nk. kl. 20:30. Á dagskrá fundarins er m.a. umræða um breytta tilhögun sorphirðumála og fleiri almennar umræður um málefni sveitarfélagsins. Kaffiveitingar verða á fundinum.

Dagskrá fundarins:

  1. Setning fundar, skipan starfsmanna.
  2. Skýrsla oddvita.
  3. Kynning á ársreikningum sveitarfélagsins og umræður um þá.
  4. Umræða um breytta tilhögun sorphirðumála í sveitarfélaginu. Framsögu hefur Vilhelm Harðarson.
  5. Almennar umræður um málefni sveitarfélagsins.
  6. Fundarslit.

Heimild: hunavatnshreppur.is

 

Fleiri fréttir