Íbúar Norðurlands vestra móta framtíð landshlutans í nýrri sóknaráætlun fyrir árin 2020-2024

Ný Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2020-2024 var samþykkt samhljóða á haustþingi samtakanna sem fram fór þann 18. október sl. á Sauðárkróki og hefur vinna við gerð áætlunarinnar staðið yfir frá því á vordögum. Á heimasíðu SSNV kemur fram að lögð afi verið rík áhersla á víðtækt samráð við íbúa og aðra hagaðila og mætti ætla að vel á fimmta hundrað manns hafi komið að gerð áætlunarinnar með einum eða öðrum hætti.

Í áætluninni er unnið úr frá fjórum lykilmálaflokkum: Atvinnuþróun og nýsköpun, menningarmálum, umhverfismálum og að síðustu menntun og lýðfræðilegri þróun. Í hverjum málaflokki eru sett markmið og jafnframt tilgreind dæmi um aðgerðir.

Úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs fer af stað strax í kjölfar samþykktarinnar og er frestur til að skila inn umsóknum til 20. nóvember. Jafnframt verður farið í að skilgreina áhersluverkefni til næstu ára út frá áætluninni.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV segir nýja sóknaráætlun metnaðarfullt plagg sem muni ef vel er haldið á spöðum skila landshlutanum miklum ávinningi. „Það víðtæka samráð sem viðhaft var gefur áætluninni aukið vægi enda í henni áherslur íbúa í forgrunni“ er haft eftir unni á ssnv.is en þar er hægt að fræðast nánar um áætlunina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir