Íbúar Skagabyggðar greiða lægsta útsvarið

Íbúar á Skaga greiða lægst útsvar allra landsmanna. Mynd: KSE.
Íbúar á Skaga greiða lægst útsvar allra landsmanna. Mynd: KSE.

Íbúar sveitarfélagsins Skagabyggðar greiða að meðaltali minnst í útsvar af landsmönnum. Útsvar á Skagaströnd er hins vegar það fjórða hæsta sem gerist á landsvísu. Um þetta var fjallað í Viðskiptablaðinu í gær.

Í Viðskiptablaðinu kemur fram að íbúar Fjarðabyggðar greiða mest í útsvar á hvern íbúa. Þar borgar hver íbúi 564 þúsund í útsvar. Íbúar Seltjarnarness greiða næsthæsta útsvarið eða 548 þúsund. Garðbæingar er í þriðja sæti með 530 þúsund og þar á eftir koma íbúar Skagastrandar með 526 þúsund krónur.

Nágrannasveitarfélagið Skagabyggð er hins vegar í neðsta sæti þegar útsvar á hvern íbúa er reiknað en þar borgar hver íbúi 322 þúsund krónur á ári í útsvar. Í Skagabyggð búa um 100 manns og útsvar þeirra var einnig lægst árið 2013. 

Fleiri fréttir