Íbúðalánasjóður selur 504 fast­eignir um land allt

Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að selja 504 fasteignir um allt land. Mynd: KSE.
(Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint)
Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að selja 504 fasteignir um allt land. Mynd: KSE. (Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint)

Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að setja um 500 íbúðir úr eigna­safni sjóðsins í opið sölu­ferli. Um er að ræða þriðjung þeirra íbúða sem nú eru í eigu sjóðsins eða 504 íbúðir alls. Íbúðirnar eru um land allt og verða boðnar til sölu í 15 eigna­söfnum. Veru­legur hluti íbúðanna er í útleigu en hluti eign­anna þarfnast lagfær­ingar. 


Sala eign­anna er í takti við markmið Íbúðalánasjóðs um að selja meiri­hluta fast­eigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Vonast sjóðurinn til að stuðla um leið að auknu framboði á íbúðarhúsnæði víða um land. 

Eigna­söfnin sem seld verða eru misjöfn að stærð og gerð. Samsetning eigna í hverju safni miðast við að hagkvæmt geti verið að reka um þær leigu­félög og eru eignir í hverju þeirra að jafnaði í sama byggðarlagi. Ákveðið var að hafa hvert eigna­safn hóflegt að stærð til þess að það sé á færi fleiri fjár­festa að bjóða í þau. Heimilt verður að bjóða í einstök eigna­söfn eða fleiri saman. 

Sölu­ferlið hefst mánu­daginn 14. desember nk. og munu áhuga­samir fjár­festar þá geta nálgast ítar­lega upplýs­inga­skýrslu um sölu­ferlið og eign­irnar á heimasíðu Íbúðalánasjóðs. Sama dag verður boðið til kynn­ing­ar­fundar sem haldinn verður í sal Grand hótel Reykjavík kl. 14:00. Þeir sem hyggjast sækja fundinn verða að skrá sig til þátttöku fyrir kl. 13 á mánu­deg­inum. Skráning fer fram á heimasíðu Íbúðalánasjóðs undir tengl­inum „Sala eigna­safna – skráning á kynn­ing­ar­fund“. Á fund­inum verður farið yfir sölu­ferlið og fast­eigna­söfn­unum lýst nánar.

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs : „Að undan­förnu hefur gengið vel að selja fast­eignir sjóðsins til einstak­linga, leigu­fé­laga og sveit­ar­fé­laga. Salan á þessum ríflega 500 fast­eignum, sem nú verða seldar í opnu sölu­ferli, er í samræmi við stefnu sjóðsins um að selja meiri­hluta fast­eigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Hlut­verk Íbúðalánasjóðs er að lána til húsnæðiskaupa og stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði en ekki að reka fast­eignir í lengri tíma. Staða Íbúðalánasjóðs hefur batnað mikið á síðustu miss­erum en um leið sjáum við að staðan á húsnæðismarkaði er erfið fyrir marga. Íbúðalánasjóður hefur reynt að mæta þessu, m.a. með umfangs­mik­illi ráðgjöf við fast­eigna­kaup­endur enda býr starfs­fólk okkar yfir mikilli þekkingu á fast­eignalánum.“ 

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir