Indriði Grétarsson formaður Skotvís

Skagfirðingurinn Indriði Ragnar Grétarsson var kjörinn nýr formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, á aðalfundi félagsins sem fram fór laugardaginn 25. febrúar sl. Tekur hann við af Dúa J. Landmark en Indriði hefur verið í stjórn síðan 2012 og verið varaformaður félagsins síðustu tvö ár.
Aðrir í stjórn eru Gunnar Guðmundsson sem var kosinn varaformaður, Þórður Hilmarsson, Þorbergur Geirsson, Emil Hallgrímsson, Þórhallur Borgarsson og Sigurbjörn Snjólfsson.
Umhverfisráðherra Björt Ólafsdóttir hélt stutt erindi á fundinum og svaraði spurningum að erindi loknu ásamt Jóni Geir Péturssyni skrifstofustjóra Landgæða.
Er þetta í fyrsta skipti sem Umhverfisráðherra heldur erindi á aðalfundi SKOTVÍS eftir því sem elstu menn muna í Skotvís, segir í tilkynningu frá félaginu.