Indriði kosinn fyrsti formaður svæðisráðs SKOTVÍS á Norðvesturlandi

Stofnfundur svæðisráðs SKOTVÍS á norðvesturlandi var haldinn þann 28. nóvember sl. á Sauðárkróki, en á fundinn mættu á annan tug veiðimanna.  Á fundinum fór Arne Sólmundsson, varaformaður SKOTVÍS, yfir árangur af starfi félagsins í gegnum árin og kynnti síðan stefnu SKOTVÍS og nauðsyn þess að virkja þekkingu skotveiðimanna í gegnum svæðisráðin. 

Fram kom í máli Arne að fyrirkomulag veiðistjórnunar er eitt brýnasta málefnið sem skotveiðimenn þurfa að koma að og er svæðisráðið hugsað sem vettvangur til að virkja þekkingu skotveiðimanna til áhrifa, en það mun vinna sjálfstætt að þeim málum sem eru veiðimönnum hugleikin, með stuðningi frá stjórn félagsins.

Sigurfinnur Jónsson kenndur við Stein (Finni á Steini) og Arne Sólmundsson varaformaður Skotvís. Mynd: Indriði

Á fundinum kom einnig fram að SKOTVÍS er að undirbúa stofnun fagráðs um rannsóknir og veiðistjórnun, en eitt fyrsta viðfangsefni fagráðsins verður að ýta úr vör samantekt á rjúpnarannsóknum sem hafa verið gerðar, hvert samhengi þeirra hefur verið við veiðistjórnun, hvað má betrumbæta og gera tillögur um aðgerðir í samráði við svæðisráðin.

Tómas Árdal og Kristján Sturlaugsson gjaldkeri Skotvís. Mynd: Indriði

Indriði R. Grétarsson var kosinn formaður svæðisráð Norðvesturlands sem mun strax hefjast handa við skipulagningu málefnastarfsins. Eins og við var að búast var mönnum rjúpan hugleikin og komu fram ýmsar skoðanir á því hvernig skuli haga málum varðandi veiðistjórnun og greinilegt að mikil þekking er til staðar um þessi mál sem til stendur að virkja.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir