Inga Heiða er Lukku Lækir Feykis

Búið er að draga í Fésbókarleiknum hjá Lukku Læki á Feyki.is og eiga þrír stálheppnir lækarar von á glaðningi. Þriðju verðlaun og tveggja mánaða fría áskrift að Feyki fær Gísli Óskar Konráðsson, önnur verðlaun og fjögurra mánaða frí áskrift kom í hlut Aðalsteins Orra Arasonar.

 

Fyrstu verðlaun hlaut Inga Heiða sem veitir henni fjögurra mánaða fría áskrift að Feyki auk strigaprents að verðmæti kr. 7500-.

Verðlaunahafar eru beðnir um að hafa samband við Feyki annaðhvort í síma 4557176 eða á netfangið feykir@feykir.is.

 

Fleiri fréttir