Ingimar Hólm fékk eldavarnaglaðning

Dregið var í  árlegri eldavarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á dögunum. Þátttakendur eru 3. bekks nemendur á landinu öllu og var einn heppinn einstaklingur í Skagafirði sem hlaut vinning.

Hann heitir Ingimar Hólm Jónsson og er í Varmahlíðarskóla. Fékk hann m.a. reykskynjara, bol og 10 þúsund króna seðil. Á meðfylgjandi mynd má sjá Svavar Atla Birgisson, settan slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Skagafjarðar og Ingimar Hólm við afhendinguna.

Fleiri fréttir