iPhone í vörslu lögreglu

Týndir þú símanum þínum?
Týndir þú símanum þínum?

Hjá lögreglunni á Sauðárkróki er iPhone sími sem saknar eiganda síns. Ef einhver kannast við gripinn getur hann vitjað hans á lögreglustöðinni.

Til gamans má nefna að tíu ár er síðan iPhone var gefinn út fyrst en það var þann 29. júní 2007 í Bandaríkjunum. Á WikiPedia segir að Apple iPhone sé margmiðlunar/Internet studdur farsími með snertiskjá kynntur af framkvæmdarstjóra Apple, Steve Jobs á keynote sýningunni á Macworld Conference & Expo þann 9. janúar 2007. 

Fleiri fréttir