Ís-landsmót 2012
Laugardaginn 3. mars verður haldið hið margrómaða Ís-landsmót á Svínavatni í Austur Húnavatnssýslu. Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulagið veðrur með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á heimasíðu mótsins.
Þar segir að nú standi yfir söfnun styrktaraðila og ljóst sé að verðlaunafé verður a.m.k. það sama og undanfarin ár eða 480.000. kr. samtals auk bikara fyrir átta efstu sætin í hverjum flokki.
Skráningagjöld verða óbreytt, 3.000. kr. á skráningu og þegar hefur allan snjó tekið upp af vatninu og ísinn sléttur og hnausþykkur eftir mikil frost framan af vetri.