Ís-landsmót á Svínavatni
Húni.is greinir frá því að Ís-landsmót á Svínavatni verði haldið líkt og undanfarin ár en það mót hefur notið vaxandi vinsælda meðal hestamanna og koma margir um langan veg til að taka þátt. Mótið mun fara fram laugardaginn 5. mars næstkomandi.
Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar um mótið birtar í hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins.