Ísbað á Blönduósi í dag

Í dag mun Benedikt Lafleur standa fyrir kynningu á heilsugildi kaldra baða, einkum ísbaða, í Sundlaug Blönduóss. Þá gefst gestum kostur á að prófa að baða sig í alvöru ís og einnig að skrá sig á Íslandsmeistaramótið í ísbaði sem fram fer eftir mánuð.

Auk Benedikts, mun Ísgel verða með kynningu á vörum sínum og Íslandsmeistaramótið í ísbaði verður kynnt en það fer fram 23. maí nk. kl. Skipulagning viðburðarins er í höndum Benedikts Lafleur og Róberts Daníels Jónssonar, forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi sem gefa nánari upplýsingar í síma: 6593313 / 4524178

Fleiri fréttir