Íslandsmet slegið á Landsmóti STÍ í leirdúfuskotfimi
Nú um helgina var haldið Landsmót STÍ í leirdúfuskotfimi á velli Markviss. 23 keppendur voru skráðir til leiks og voru flestir bestu skotmenn landsins þar á meðal. Aðstæður voru hinar ágætustu og skutu menn í sól og blíðu á laugardeginum.
Efstu menn eftir fyrri daginn voru Sigurþór Jóhannesson SIH á 72/75, Örn Valdimarsson SR á 66/75, Guðmann Jónasson Markviss 64/75 og jafnir í fjórða til fimmta sæti voru Bergþór Pálsson Markviss og Hákon Þór Svavarsson SFS á 63/75.
Sigurþór var í feikna formi á sunnudeginum og jafnaði sitt eigið Íslandsmet 119/125 fyrir úrslit. Í úrslitum skaut hann svo 24/25 dúfum og endaði á skorinu 143/150 sem er nýtt Íslandsmet en fyrra metið átti hann einnig sem var 142/150 (sett árið 2009). Í öðru sæti hafnaði svo Örn Valdimarsson SR á 131/150, Guðmann í þriðja á 127/150, Bergþór í fjórða á 126/150 og Hákon í því fimmta á 125/150. Þriðji Markviss maðurinn Brynjar Þór Guðmundsson hafnaði svo í 15. sæti.
Í liðakeppninni hafnaði lið Markviss (Bergþór, Brynjar og Guðmann) í öðru sæti á eftir A-sveit SIH og A- lið SR í þriðja sæti.
Á laugardagkvöldinu bauð Markviss keppendum og meðfylgjendum til veislu í Ósbæ í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Mættu þar hátt í 50 manns og voru ýmis málefni rædd þar fram eftir kvöldi milli þess sem gestir gæddu sér á grilluðum og bökuðum kræsingum.
Stjórn Markviss veitti Sighvati Smára Steindórssyni fyrrverandi formanni Markviss heiðursviðurkenningu fyrir störf hans í þágu félagsins en hann hefur frá stofnun félagsins verið einn ötulasti félagsmaður Markviss. Þá veitti Bergþór Pálsson viðtöku góðum gjöfum frá Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar og Skotíþróttafélagi Reykjavíkur.
Félagsmenn í Skotfélaginu Markviss vilja koma á framfæri þakklæti til keppenda og annarra gesta sem eyddu með okkur helginni, þá viljum við ennfremur þakka eftirtöldum fyrirtækjum framlag þeirra til móts og veislu: SAH-Afurðir, Vilko, Vesturröst, Hlað, Ísnes, MS og verslunarfélagið Týr.