Íslensk minkaskinn seldust á háu verði
Þessa viku stendur yfir uppboð á loðdýraafurðum í Kaupmannahöfn, Copenhagen Fur, þar sem flestir íslenskir loðdýrabændur selja sínar afurðir. Uppboðið er eitt hið stærsta í heiminum og þar hittast kaupendur og seljendur alls staðar að til að eiga viðskipti með loðdýraafurðir. Steingrímur J. Sigfússon brá sér í betri fötin og heilsaði m.a. upp á íslenska loðdýrabændur.
Á vef Atvinnuvegaráðuneytisins segir að Steingrímur hafi hitti þá Björn Halldórsson á Akri í Vopnafirði sem jafnframt er formaður loðdýrabænda og Einar Einarsson frá Skörðugili í Skagafirði og átti einnig fund með Tage Pedersen framkvæmdastjóra Copenhagen Fur.
Verð á loðdýraafurðum er sögulega hátt um þessar mundir í flestum afurðaflokkum og fékkst mjög gott verð fyrir íslensku skinnin enda þykja gæði þeirra vera afburða góð.