Ísólfur kemur í stað Hönnu Rúnar í Íbess-Hleðslu

Fjórða liðið sem mun taka þátt í KS-Deildinni í ár er Íbess-Hleðsla. Liðstjóri er Jóhann B. Magnússon og með honum eru Magnús Bragi Magnússon, Ísólfur Líndal Þórisson og Anna Kristín Friðriksdóttir. 

„Þetta lið hefur misst Hönnu Rún Ingibergsdóttur sem stóð sig afar vel í fyrra. Í stað Hönnu Rúnar kemur Ísólfur Líndal. Það er ánægjulegt að fá Ísólf aftur í KS-Deildina og það er ljóst að þetta lið ætlar sér langt,“ segir í fréttatilkynningu.

 

Fleiri fréttir