Ístex hagnaðist um 77 milljónir króna

Ullarvinnslufyrirtækið Ístex hf. skilaði 77 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 60 milljónir árið 2011. Velgengnina má rekja til góðs árangurs sem náðst á erlendum mörkuðum, en einnig var vöxtur á innanlandsmarkaði, þó mun minni. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var sl. föstudag.

Á vefsíðu Landssambandi Sauðfjárbænda kemur fram að tekjur félagsins í heild jukust um rúm 10% á milli ára. Skuldir lækkuðu jafnframt um 74 milljónir króna, bæði vegna niðurgreiðslu í ljósi góðrar afkomu og leiðréttinga lána. Heildarskuldir hafa lækkað um nær 180 milljónir króna á síðustu árum.

Samþykkt var á fundinum að greiða 20% arð á hlutafé eins og sl. tvö ár.  Arðgreiðslan miðast við heildarhlutafé og nemur 11,9 milljónum í heild.  Landssamtök sauðfjárbænda eiga 15,5% hluti í Ístex.

Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri LS lét af störfum í stjórn félagsins á fundinum, en í stað hans tók sæti Sigríður Jónsdóttir, bóndi í Arnarholti.  Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir, en það eru Ari Teitsson, Gunnar Sæmundsson, Jón Haraldsson og Viktor Guðbjörnsson.  Ari Teitsson var endurkjörinn formaður stjórnar á fyrsta fundi hennar strax að loknum aðalfundi.

Fleiri fréttir