Ístölt á hnjúkatjörn
Fyrsta mót vetrarins í Mótaröð Neista, ístöltið, verður haldið á Hnjúkatjörn nk. sunnudag , 9. febrúar kl.14.00, ef veður og færð leyfa, en því var frestað um sl. helgi vegna slæms veðurútlits. Keppt verður í 3 flokkum í mótaröðinni eins og verið hefur.
Flokkarnir eru: Flokkur 16 ára og yngri, áhugamannaflokkur og opinn flokkur. Tveir keppendur eru inn á í einu. Riðinn er einn leggur hægt tölt og til baka tölt með hraðabreytingum. Aftur tölt með hraðabreytingum og svo yfirferðartölt til baka. Alls fjórar ferðir. Úrslit eru riðin í hverjum flokki fyrir sig strax eftir forkeppni. Fimm knapar í úrslitum, með þeirri undantekningu þó ef að einhverjir eru jafnir að stigum.
Skráningargjald er kr. 1.500 fyrir fyrstu skráningu og 1.000 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 1.000 fyrir hverja skráningu. Skráning sendist á email heneisti@gmail.com fyrir kl. 14.00 laugardaginn 8. febrúar. Fram þarf að koma knapi og hestur, og í hvaða flokki er keppt. Einnig þarf að taka fram IS númer hests og kennitölu knapa líka.
Einnig verður bæjarkeppni, með firmakeppnisfyrirkomulagi þ.e. riðnar fjórar ferðir með frjálsri aðferð. Engin skráningargjöld.
Sama fyrirkomulag verður á mótaröðinni eins og verið hefur varðandi stigasöfnun þ.e. 10 stig fyrir 1. sætið, 8 stig fyrir 2. sætið, 6 stig fyrir 3. sætið og svo 5,4,3,2,1 stig niður í 8. sætið.
Keppendur skrá sig í flokka í upphafi keppni og haldast í þeim flokkum út mótaröðina, með þeim möguleika þó að keppendur mega skrá sig upp um flokk hvenær sem er kjósi þeir það en þá er ekki heimilt að fara til baka og ekki taka þeir með sér þau stig sem að þeir hafi til unnið. Annars gilda almennt reglur LH, og er bent sérstaklega á reglur um fóta,- og beislisbúnað.