Íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi heimil með skilyrðum : Reglugerðir um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi á morgun

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mynd: Stjórnarráðið.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mynd: Stjórnarráðið.

Reglugerðir Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi á morgun, þriðjudaginn 20. október, hafa verið staðfestar og verið birtar í Stjórnartíðindum í dag. Annars vegar er ný reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og hins vegar breyting á reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar. Allt að 50 einstaklingum er heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum á vegum ÍSÍ en áhorfendur bannaðir.

Á vef stjórnarráðsins kemur fram að  heilbrigðisráðuneytið hafi birt tilkynningu síðastliðinn föstudag þar sem gerð var grein fyrir meginefni áformaðra breytinga á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi á morgun en með þeim fyrirvara að nákvæm útfærsla einstakra þátta yrði skýrð með reglugerð. Við smíði reglugerðarinnar voru höfð að leiðarljósi þau meginsjónarmið sóttvarnaráðstafana að gætt sé því að fólk haldi fjarlægð sín á milli, komi ekki saman í stórum hópum og deili ekki sameiginlegum snertiflötum nema þeir séu sótthreinsaðir á milli einstaklinga. Jafnframt eru lýðheilsusjónarmið lögð til grundvallar með áherslu á að sem flestir geti stundað íþróttir og heilsurækt í einhverjum mæli.

Vakin er athygli á 5. gr. meðfylgjandi reglugerðar um takmarkanir á samkomum varðandi útfærslu á nálægðartakmörkun í íþróttum o.fl. og bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar sem kveður á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Nánar er greint frá þessu hér að neðan:

Íþróttir og keppnir utan höfuðborgarsvæðisins:

Þrátt fyrir tveggja metra nálægðartakmörk eru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), en virða skal tveggja metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir 20 manna fjöldatakmörk er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum á vegum ÍSÍ. Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum.

Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Við þessar aðstæður er skylt að virða tveggja metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.

Höfuðborgarsvæðið

Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Við þessar aðstæður er skylt að virða tveggja metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.

Heimildir fyrir íþróttastarfi, æfinga og keppna á vegum ÍSÍ gilda ekki á höfuðborgarsvæðinu.

Íþrótta- æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, þar með talið skólasund, sem krefst meiri snertingar og frekari blöndunar hópa en í skólastarfi, er óheimilt á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Reykjavík, á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir